Samkeppniseftirlitið segir að Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) misskilji boðskap stofnunarinnar um rekstrarkostnað banka. Viðbrögð SFF styðji vísbendingar um að samkeppni sé áfátt.
Samkeppniseftirlitið segir í tilkynningu, að SFF hafi í dag gefið út fréttatilkynningu þar sem fram komi það mat samtakanna að samanlagður rekstrarkostnaður Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans hafi hækkað um fimm milljarða á árunum 2009-2011 að teknu tilliti til samruna og skatta.
„Það er svipað mati Samkeppniseftirlitsins í skýrslu nr. 1/2013 Fjármálaþjónusta á krossgötum þar sem segir að rekstrarkostnaður bankanna hafi aukist um 18 milljarða á verðlagi ársins 2012 en um helming aukningarinnar megi rekja til áhrifa samruna og 1,5 milljarða vegna fjársýsluskatts á laun og skattlagningar til fjármögnunar á rekstri Fjármálaeftirlitsins og umboðsmanns skuldara. Í útreikningum sínum hafði Samkeppniseftirlitið einnig tekið tillit til áætlaðs rekstrarkostnaðar 2012 sem metinn var út frá níu mánaða uppgjörum bankanna,“ segir í tilkynningu.
Þá segir, að umfjöllun SFF bendi ekki til að stóru viðskiptabankarnir þrír innan vébanda samtakanna hafi meðtekið þann boðskap sem Samkeppniseftirlitið vildi koma á framfæri með umfjöllun um rekstrarkostnað og vaxtamun banka.
„Stóru viðskiptabankarnir eru að stækka með yfirtökum og rekstrarkostnaður þeirra, með og án áhrifa samruna, að aukast. Athuganir Samkeppniseftirlitsins benda eindregið til þess að aðhald með rekstri þeirra sé minna en almennt í rekstri á öðrum sviðum hagkerfisins eftir hrun. Rekstrarkostnaður er þó aðeins einn þáttur í þessari mynd, þó hann gefi vissulega til kynna að samkeppnisaðhaldi á fjármálamarkaði sé áfátt. Aðeins virk samkeppni er líkleg til að knýja bankana til að deila ábata af hagræðingu með viðskiptavinum sínum,“ segir í tilkynningu Samkeppniseftirlitsins.
Í lok tilkynningarinnar segir, að það veki sérstaka athygli að SFF standi að sameiginlegum viðbrögðum viðskiptabankanna við skýrslunni. Varhugavert verði að teljast að samtök af þessu tagi séu farvegur fyrir sjónarmið sem byggjast á rekstrarupplýsingum bankanna og varða kjarna þeirrar samkeppni sem ríkja á milli þeirra samkvæmt samkeppnislögum.
„Þátttaka samtakanna í þessari umræðu styður við vísbendingar um að samkeppni á fjármálamarkaði sé áfátt, líkt og Samkeppniseftirlitið rekur í skýrslunni. Það bæri vott um heilbrigðara samkeppnisumhverfi á markaði fyrir viðskiptabankaþjónustu ef hver og einn viðskiptabankanna tæki þátt í umræðu af þessu tagi með sjálfstæðum hætti,“ segir Samkeppniseftirlitið.