Hross ekki notað í stað nauts hér á landi

Nautakjöt er ekki blandað hrossakjöti hér á landi samkvæmt rannsókn …
Nautakjöt er ekki blandað hrossakjöti hér á landi samkvæmt rannsókn Matvælastofnunar. mbl.is

Matvælastofnun hefur látið rannsaka íslenskar matvörur á markaði til að kanna hvort þær innihaldi hrossakjöt án þess að þess sé getið á umbúðum. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að hrossakjöti hafði ekki verið blandað í vörurnar. 

Vegna tilfella um íblöndun hrossakjöts í stað nautakjöts í matvörur í Evrópu ákvað Matvælastofnun að láta rannsaka íslenskar matvörur á markaði til að kanna hvort sambærilegt ástand væri hér á landi.

Í því skyni tók Matvælastofnun í síðustu viku 16 sýni af íslenskum matvörum í verslunum. Samkvæmt innihaldslýsingu innihéldu vörurnar m.a. nautakjöt, en engin þeirra hrossakjöt. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð HÍ á Keldum og á Matís ohf. Sjá töflu hér að neðan.

Öll sýni voru neikvæð með tilliti til þess hvort um íblöndun á hrossakjöti var að ræða í matvörurnar. Þó gaf eitt sýni, saltkjötshakk frá Fjarðarkaup, jákvæða svörun um það að hrossakjöt væri til staðar. Það sýni var sent í magngreiningu sem gaf neikvæða svörun.

Skýringin á þessum mismun í svörum er hugsanlega sú að um sé að ræða óverulegar leifar af hrossakjöti í vinnslubúnaði, en það mun verða skoðað nánar af viðkomandi heilbrigðiseftirliti.

Matvælastofnun mun á næstu dögum fara nánar yfir þær vörur sem teknar voru til rannsóknar með tilliti til innihaldsefna og merkinga þeirra. Nánar verður greint frá niðurstöðum varðandi þessa þætti í næstu viku þegar þær upplýsingar liggja fyrir.

Matvælastofnun og heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga munu áfram fylgjast með vinnsluferlum, uppskriftum og merkingum  matvæla í matvælafyrirtækjum í sínu reglubundna eftirliti.

Lista yfir þau sýni sem tekin voru og frá hvaða framleiðanda má sjá á vef Matvælastofnunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert