Björn Valur Gíslason var kjörinn varaformaður VG á landsfundi flokksins. Hann fékk 142 atkvæði eða 57% atkvæða.
Daníel Haukur Arnarsson, stjórnarmaður í ungum Vinstri grænum, fékk 56 atkvæði eða 22% atkvæða og Þorsteinn Bergsson bóndi fékk 50 atkvæði eða 21% atkvæða. Einn seðill var auður.
Sóley Tómasdóttir var endurkjörin ritari VG og Hildur Traustadóttir var endurkjörin gjaldkeri.