Málið ekki rætt þó að ráðherra væri í þingsal

Frá Alþingi.
Frá Alþingi. Morgunblaðið/Ómar

Nokkur umræða fór fram í þingsal í dag varðandi tillögu til þingsályktunar um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu sem Siv Friðleifsdóttir er fyrsti flutningsmaður að.

Þingmennirnir Siv Friðleifsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Ragnheiður Elín Árnadóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir tóku þátt í umræðunum þar sem því var mótmælt að málið yrði tekið af dagskrá í dag. Um er að ræða framhald síðari umræðu um málið sem var frestað 20. febrúar síðastliðinn. Á þau mótmæli var þó ekki hlustað í dag og málið var tekið af dagskrá.

Mál ráðherra situr fast í nefnd

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra blandaði sér í umræðurnar en mál frá ráðherra um svipað efni situr fast í allsherjar- og menntamálanefnd þingsins og undraðist ráðherra meðferð málsins í nefndinni.

Álfheiður Ingadóttir, formaður þingflokks Vinstri grænna, upplýsti í umræðunni að hún hefði farið fram á að málið yrði tekið af dagskránni. Enginn þingmaður VG er meðal flutningsmanna, en tveir nefndarmenn hafa fyrirvara á stuðningi sínum við málið.

Sambærilegt og í öðrum norrænum ríkjum

Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að fela innanríkisráðherra að vinna og leggja fyrir Alþingi frumvarp sem veiti lögreglunni sambærilegar heimildir og lögregla í öðrum norrænum ríkjum hefur til að rannsaka og grípa til fyrirbyggjandi aðgerða gegn skipulagðri glæpastarfsemi (forvirkar rannsóknarheimildir).“

Flutningsmenn eru; Siv Friðleifsdóttir, Róbert Marshall, Birgir Ármannsson, Birkir Jón Jónsson, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Gunnar Bragi Sveinsson, Kristján L. Möller og Sigurður Ingi Jóhannsson.

Sakar Álfheiði um að stjórna þinginu

Þegar Álfheiður fór fram á frestun hinn 20. febrúar sagði hún við umræðurnar: „Það er mjög óvanalegt að mál komist á dagskrá með þeim fyrirvara sem hér er. Það mátti enginn búast við því í sjálfu sér, þar á meðal ekki hæstv. innanríkisráðherra sem er í útlöndum. Hann blandaði sér verulega í umræðuna við fyrri umr. og vill gjarnan taka þátt í síðari umræðu um málið.“

Ráðherra var í salnum í dag

Siv sakaði Álfheiði Ingadóttur um að stjórna Alþingi Íslendinga með því að vilja ekki hleypa málinu aftur á dagskrá. Þegar umræðunni var frestað var það gert vegna þess að ráðherra var ekki í salnum né þeir tveir þingmenn sem höfðu fyrirvara um stuðning við það. Ráðherra var hinsvegar í þingsalnum í dag og tók, sem fyrr segir, þátt í því að ræða undir liðnum „fundarstjórn forseta“ um fyrrgreint mál áður en það var tekið af dagskránni.

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra
Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra mbl.is/Árni Sæberg
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Ómar
Álfheiður Ingadóttir, formaður þingflokks Vinstri grænna.
Álfheiður Ingadóttir, formaður þingflokks Vinstri grænna.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert