„Bara undir Súðavíkurhlíð taldi ég ellefu staði þar sem ójöfnur vegna skemmdanna á veginum myndu rekast upp undir bílinn minn,“ segir íbúi á Súðavík sem er orðinn langþreyttur á lélegu ástandi vegarins undir Súðavíkurhlíð.
Meðfylgjandi myndir tala sínu máli, en hann segir veginn þar afar illa farinn og að þannig hafi hann verið síðan í síðustu viku. „Ég veit til þess að bíldekk hafa rifnað og felgur skemmst.“
Að auki séu aðstæður þarna afar hættulegar. „Það er ekki eitt einasta vegrið á veginum undir Súðavíkurhlíð. Ef bíll rynni til á þessum óupplýsta vegi, þá væri það bara frjálst fall niður í sjó.“