„Skrípaleikur frá upphafi til enda“

mbl.is/Sigurður Bogi

„Þetta er alger skrípaleikur frá upphafi til enda og það er alveg ljóst mál að þeir sem komu fyrir nefndina með skrifleg álit, rökstuddar ábendingar eða gagnrýni fóru fullkomna erindisleysu því það var í engu sem nokkru máli skiptir tekið mark á þeim ábendingum sem frá þeim komu. Það er greinilegt að frá upphafi var ætlunin að keyra þetta mál í gegn eins og það kom fram á þinginu og fyrirfram var búið að ákveða að hvað sem tautaði og raulaði, hvað sem hver myndi segja þá yrði engu breytt. Og við það hefur þetta fólk staðið.“

Þetta segir Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi í atvinnuveganefnd Alþingis en frumvarp Steingríms J. Sigfússonar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, um stjórn fiskveiða var afgreitt úr nefndinni í kvöld. Þrír fundir fóru fram um málið í nefndinni í dag og fer það nú til annarrar umræðu í þinginu. Einar segir að fulltrúum minnihlutans í nefndinni hafi verið meinað að fá nauðsynlegar upplýsingar. Gestir sem komu á fundi hennar hefðu fengið nauman tíma og í ýmsum tilfellum fyrir vikið ekki getað svarað spurningum sem að þeim var beint. Þá hafi því verið hafnað að farið yrði efnilega yfir málið með atvinnuvegaráðuneytinu.

„Með öðrum orðum var hér eingöngu á ferðinni sjónarspil en það sem þó er miklu alvarlegra er það að efnisatriði frumvarpsins, að mati allra þeirra sem tjáðu sig um það, stangast á við öll helstu markmið þess. Það er ljóst að það mun hafa neikvæð áhrif í för með sér fyrir sjávarútvegsfyrirtæki, það mun draga úr atvinnuöryggi fiskverkafólks, það mun veikja sérstaklega þær sjávarbyggðir sem veikastar eru fyrir og mun óhjákvæmilega leiða til þess að greiðslugeta sjávarútvegarins verður að öllu leyti lakari.“

Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður.
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður. mbl.is/ÞÖK
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert