Bærinn var bænheyrður

Tjaldstæðið að Hömrum.
Tjaldstæðið að Hömrum. Ljósmynd/Karl Eskil

Klakinn sem huldi opin svæði í Akureyrarbæ hvarf að mestu í hlýindunum í vikunni og svæðin virðast almennt líta ágætlega út. „Við höfum séð einhverjar skemmdir, eins og gengur og gerist, en það er varla hægt að tala um verulegar kalskemmdir, sem við óttuðumst svo mjög fyrir viku síðan,“ segir Jón Birgir Gunnlaugsson forstöðumaður umhverfismála hjá Akureyrarbæ í samtali við Vikudag.

„Við vorum því einfaldlega bænheyrð í þessum efnum, því útlitið var vissulega ekki bjart. Helst vorum við hrædd um tjaldsvæðið á Hömrum, enda um stórt svæði að ræða.“

„Það bjargaðist mikið hérna um helgina, það er þó enn töluverður klaki á svæðinu, enda var hann 10 sentímetra þykkur áður en hlýnaði svona mikið í veðri. Ég get nefnt sem dæmi að fjórar flatir komu undan klakanum í heilu lagi og eru líklega óskemmdar með öllu. Við hreinlega sáum klakann bráðna og það var einstaklega ánægjulegt,“ segir Tryggvi Marinósson framkvæmdastjóri Hamra.

 Frétt Vikudags í heild.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert