Vilja skerpa á skyldum fjölmiðla

Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra um aðgang stjórnmálahreyfinga og frambjóðenda að …
Nefnd mennta- og menningarmálaráðherra um aðgang stjórnmálahreyfinga og frambjóðenda að fjölmiðlum ásamt ráðherranum, Katrínu Jakobsdóttur. Ljósmynd/Mennta- og menningarmálaráðuneytið

Meðal þess sem lagt er til í skýrslu nefndar um aðgang stjórnmálahreyfinga og frambjóðenda að fjölmiðlum í aðdraganda kosninga er að gerðar verði breytingar á lögum um fjölmiðla „sem undirstriki almennar skyldur fjölmiðla í aðdraganda kosninga“. Miðað verði við sex vikur fyrir kjördag í því sambandi og meðal annars skerpt á skyldu fjölmiðla „til að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur og uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni í umfjöllun sinni“.

Ennfremur er lagt til að kveðið verði á um það í lögum að Ríkisútvarpið skuli veita framboðum og stuðningshreyfingum valkosta í þjóðaratkvæðagreiðslum kost á því að fá birt kynningarefni í sjónvarpi þeim að kostnaðarlausu. Útfærsla þess verði í höndum Ríkisútvarpsins sem setji um það opinberar reglur. Þeir sem tjái sig og framboðin sjálf beri hins vegar ábyrgð á innihaldi kynningarefnis síns.

„Lagt er til að fjölmiðlanefnd verði falið það hlutverk að taka saman skýrslu að loknum sérhverjum almennum kosningum með það að augnamiði að safna þekkingu um virkni fjölmiðla í aðdraganda kosninga. Leitað verði álits fólks af vettvangi fjölmiðla, stjórnmála og álits almennings auk þess sem reynt verði að afla tölfræðilegra gagna um viðfangsefnið. Þannig safnist saman þekking sem nota megi við endurskoðun á þessum málaflokki síðar meir,“ segir í skýrslunni.

Settar verði viðmiðanir vegna skoðanakannana

Þá er lagt til að frambjóðanda, framboði eða stuðningsfélagi ákveðins valkosts í almennum kosningum verði gert mögulegt að leita óbindandi álits fjölmiðlanefndar á því hvort fjölmiðill hafi brotið gegn lögboðnum skyldum sínum í umfjöllun sinni í aðdraganda kosninga sex vikum fyrir kjördag. Sömuleiðis leggur nefndin til að settar verði takmarkanir sem þegar er kveðið á um í fjölmiðlalögum varðandi auglýsingar nái einnig til auglýsinga framboða, hagsmunasamtaka og lífsskoðunarfélaga sem ætlað er að hafa skoðanamyndandi áhrif á almenning.

„Að endingu bendir nefndin á mikilvægi þess að fjölmiðlar gæti að því að veita almenningi fullnægjandi upplýsingar til að leggja mat á gildi frétta sem byggjast á niðurstöðum skoðanakannanna og á þetta sérstaklega við þegar stutt er til kosninga. Þá leggur nefndin til við mennta- og menningarmálaráðherra að hann kanni hvort hann geti með einhverjum hætti leitt saman fagfólk á sviði fjölmiðla og skoðanakannanna í þeirri viðleitni að þessar fagstéttir geti komið sér saman um tiltekin staðal eða lágmarksviðmið um hvað teljist fullnægjandi skoðanakönnun,“ segir ennfremur í skýrslunni.

Nefndin var skipuð í nóvember 2012 af mennta- og menningarmálaráðherra og í henni sitja fulltrúar allra flokka sem eiga fulltrúa á þingi en formaður var skipaður af ráðherra án tilnefningar. Formaður nefndarinnar er Finnur Beck en aðrir í nefndinni eru Björn Þorláksson, tilnefndur af þingflokki Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Eysteinn Eyjólfsson, tilnefndur af þingflokki Samfylkingarinnar, Friðrík Þór Guðmundsson, tilnefndur af þingflokki Hreyfingarinnar, Sunna Gunnars Marteinsdóttir, tilnefnd af þingflokki Framsóknarflokksins, og Svanhildur Hólm Valsdóttir, tilnefnd af þingflokki Sjálfstæðisflokksins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert