Fjórir lögreglubílar í aðgerðinni

Ungur maður var stöðvaður af fjórum lögreglubílum á Suðurlandsvegi í …
Ungur maður var stöðvaður af fjórum lögreglubílum á Suðurlandsvegi í námunda við Hólmsheiði, að sögn sjónarvotts. Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Fjórir lögreglubílar, meðal annars frá lögreglunni á Selfossi, stöðvuðu för ungs manns á Suðurlandsvegi í námunda við Hólmsheiði, að því er sjónarvottur greinir frá.

Lögreglan á Selfossi varðist allra frétta af málinu, en staðfesti þó að lögreglumenn frá þeim kæmu að aðgerðinni.

Samkvæmt sjónarvotti var um að ræða einn ungan karlmann á fólksbifreið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert