Segja Landsnet beita blekkingum

Stjórn Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands (NSVE) furðar sig á þeim vinnubrögðum sem Landsnet hefur frammi gagnvart landeigendum á Vatnsleysuströnd og almenningi. Stjórnin segir að Landsnet reyni að blekkja almenning.

„Fyrirtækið sæktist nú eftir heimild atvinnuvegaráðherra til að taka landsréttindi þar eignarnámi svo hefja megi framkvæmdir við háspennulínu eftir endilöngum Reykjanesskaga. Landsnet reynir með blekkingum að sannfæra almenning um að umræddar háspennulínur tengist ekki álveri í Helguvík heldur sé henni ætlað að tryggja afhendingaröryggi raforku á svæðinu,“ segir í tilkynningu frá stjórn NSVE.

Þar segir að til þess að geta farið í eignarnám á því landsvæði sem fyrirhuguð lína á að liggja yfir þurfi ríkir almannahagsmunir að liggja til grundvallar. 

„Landsnet reynir því að láta líta svo út að fyrirhugaðar línur hafi ekkert að gera með einkaframkvæmdir álfyrirtækis í Helguvík. Reyndin er hins vegar önnur eins og kemur fram í hagkvæmnimati vegna verkefnisins. Þar er arðsemiskrafa reiknuð miðað við 70% stórnotendur og 30% dreifiveitur. Þar með staðfestist að Suðurnesjalína er 70% stóriðjulína og ekki ætluð nema að 30 prósentum til flutnings á rafmagni í almannaþágu. Þar með staðfestist einnig að 220 kV háspennulína, sem Landsnet hyggst reisa ásamt 132kV línu, er ekki framkvæmd í almannaþágu.“

Ekkert annað en stóriðjulína

„Svo öflug háspennulína hefur flutningsgetu langt umfram almenna raforkuþörf á svæðinu og er því ekkert annað en stóriðjulína. Orkuöflun fyrir álverið í Helguvík hefur lengi verið í uppnámi og ekkert sem bendir til að þau mál leysist á næstunni. Þess vegna er það algjört frumhlaup af hálfu Landsnets að óska núna eftir eignarnámi á landi til að geta reist háspennulínu fyrir álver sem óvíst er að muni rísa.“

Í tilkynningunni segir að Landsnet hafi ítrekað reynt að beita blekkingum í tengslum við þessar framkvæmdir og að forsvarsmenn fyrirtækisins hafi „stórýkt kostnaðarmuninn á loftlínum og jarðstrengjum, þrátt fyrir að til séu gögn sem sýna fram á annað. Fullyrðingar Landsnets um að háspennulínur með yfir 100kV spennu séu almenn lagðar sem loftlínur, bæði hér á landi, í nágrannalöndum okkar og víðar um heiminn, eru einnig tilhæfulausar.“

Stjórn NSVE segir að starfsaðferðir Landsnet hljóti að kalla á að fyrirtækinu verði settar skýrar siða- og verklagsreglur í samskiptum sínum við almenning.

Frétt mbl.is: Fréttu af eignarnáminu í fjölmiðlum

Frétt mbl.is: Tengist ekki stóriðju á Suðurnesjum

Frétt mbl.is: Óska eftir eignarnámi vegna Suðurnesjalínu

Frétt mbl.is: Stefnir í eignarnámsbeiðni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert