Norðurorka ráðgerir að opna afgreiðslustöð fyrir metan á Akureyri í sumar, þá fyrstu utan höfuðborgarsvæðisins en fyrir eru afgreiðslustöðvar hjá N1 við Bíldshöfða í Reykjavík og við Tinhellu í Hafnarfirði. Áætluð framleiðsla á hauggasi úr gömlu sorphaugunum í Glerárdal við Akureyri gæti verið um 600 þúsund normalrúmmetrar (Nm³) en þess má geta að framleiðslan hjá Sorpu bs. í Álfsnesi er um tvær milljónir Nm³ á ári. Einn Nm³ jafngildir 1,12 lítrum af 95 oktana bensíni, svona til samanburðar.
Losun lífræns úrgangs til metanframleiðslu er um (10 þúsund tonn) á ári. Samkvæmt upplýsingum frá Umhverfisstofnun er talið að 15-20% af því magni sé hægt að nýta. Þurfa urðunarstaðir að ná töluverðri stærð til að teljast hagkvæmir til framleiðslu af þessu tagi. Talið er að ríflega 1.000 ökutæki séu knúin með metani hér á landi og búið að breyta mörgum bílum þannig að þeir geti notað metan.
Sorpa er langstærsti framleiðandi á metani hér á landi. Dótturfélagið Metan var stofnað 1999, til að annast sölu- og markaðsmál. En eftir úrskurð Samkeppniseftirlitsins í fyrra sér Sorpa einungis um framleiðsluna, og N1 tók alfarið að sér sölu á metani við Bíldshöfða og í Hafnarfirði. Pípulögnin úr Álfsnesi er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur. Talið er að hægt sé að framleiða á þriðju milljón Nm³ af metani í Álfsnesi og rannsóknarverkefni er í gangi hjá Metani um það hvernig megi auka þessa framleiðslu enn meir.
Fleiri aðilar eru með áform um framleiðslu og sölu á metani. Metanorka, dótturfélag Íslenska gámafélagsins, hefur keypt metangas af Metani, eða Sorpu, en ráðgerir eigin framleiðslustöð á Melum í Hvalfjarðarsveit. Að sögn Dofra Hermannssonar er það verkefni á áætlun og stefnt að því að geta hafið framleiðslu í lok árs 2014. Er ætlunin að vinna þar um milljón Nm³ á ári af metani.
Metanorka er einnig í samstarfi við Olís um opnun afgreiðslustöðvar. Stefnt er að opnun stöðvar á fyrri hluta ársins en endanleg ákvörðun um staðsetningu liggur ekki fyrir. Metanorka hefur sömuleiðis verið með áform um að setja upp afgreiðslustöð á Ásbrú í Reykjanesbæ.
Að sögn Helga Jóhannessonar, forstjóra Norðurorku, hefur fyrirtækið verið að undirbúa metanframleiðslu í nokkur ár. Búið er að bora holur í gömlu sorphaugana í Glerárdal og benda niðurstöður til þess að vinnanlegt magn sé um 600 þúsund Nm³ á ári allt til ársins 2030 en til 2040 í mesta lagi. Magnið ætti að duga til notkunar fyrir ígildi 600 fólksbíla en Helgi segir Norðurorku leggja áherslu á að geta þjónustað stærri ökutæki, eins og vinnutæki á vegum Akureyrarbæjar. Einnig munu fólksbílar geta tekið metan á stöðinni, sem mun rísa á lóð vestan Mjólkursamsölunnar, við gatnamót Súluvegar og Miðhúsabrautar, ekki langt frá KA-vellinum.
Vegna þessara áforma festi Norðurorka kaup á gashreinsistöð frá Svíþjóð, sem kostaði um 115 milljónir króna. Verða lögð rör frá hreinsistöðinni í Glerárdal að afgreiðslustöðinni, til að flytja metanið. Alls mun það kosta Norðurorku um 300 milljónir króna að koma metanframleiðslunni af stað.