Gæti orðið glórulaus bylur

Spáð er austan 15-20 m/s og síðar 20-25 m/s undir …
Spáð er austan 15-20 m/s og síðar 20-25 m/s undir Eyjafjöllum. Þorkell Þorkelsson

Undir Eyjafjöllum og í Mýrdal er spáð hríðarveðri seint í kvöld og áfram í fyrramálið. Spáð er austan 15-20 m/s og síðar 20-25 m/s og því gæti orðið glórulaus bylur á þeim slóðum. Þetta segir í ábendingu frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar.

Norðvestantil fer skafrenningur vaxandi í kvöld og skyggni versnar á nýja leik á Vestjörðum, í Dölum, á Ströndum og víða vestantil, á Norðurlandi og við utanverðan Tröllaskaga.

Einnig er spáð hríðarveðri á Suðurstrandarvegi og við Grindavík frá því seint í nótt. Óvissa er talsverð um það hve vel inn á land hríðin kemur til með að ná sunnanlands.

Vegir eru að mestu enn auðir á Suðurlandi, hálkublettir og éljagangur er undir Eyjafjöllum.

Á Vesturlandi er hálka eða hálkublettir nokkuð víða, él og skafrenningur. Hálkublettir eru á Bröttubrekku en hálkublettir og éljagangur á Holtavörðuheiði. Þungfært og skafrenningur er á Fróðárheiði.

Slæmt ferðaveður er á Vestfjörðum. Ófært og stórhríð er um Klettsháls. Hálka og skafrenningur er á Mikladal, Hálfdán og Kleifaheiði. Þungfært og stórhríð er á Steingrímsfjarðarheiði en þæfingur og stórhríð á Þröskuldum. Hálka og skafrenningur er á Gemlufallsheiði, Önundarfirði og Súgandafirði en hálkublettir eða hálka og éljagangur er í Ísafjarðardjúpi og á Innstrandavegi.

Á Norðanverðu landinu er hálka, snjóþekja og skafrenningur og allir vegir færir fyrir vetra búna bíla.

Á Austurlandi er þæfingsfærð og skafrenningur á Fjarðarheiði. Hálka og éljagangur er á Oddsskarði en snjóþekja á Fagradal annars er víða þæfingur eða snjóþekja og skafrenningur á Héraði. Hálkublettir eru frá Fáskrúðsfirði í Djúpavog.

Vegir eru auðir á Suðausturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert