Reiknað er með að skólahald gangi fyrir sig með eðlilegum hætti á höfuðborgarsvæðinu á morgun. Lögreglan og almannavarnanefnd höfuðborgarsvæðisins ítreka þó að fólk fylgist vel með upplýsingum um færð og veður í fjölmiðlum í fyrramálið. Viðbragðsaðilar munu koma saman í morgunsárið, meta stöðuna og senda frá sér upplýsingar til fjölmiðla.
Veðurstofan gerir ráð fyrir að veður gangi niður á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og að á morgun verði vindur ögn hægari en í dag, eða 13 – 18 m/sek. Hvassast verður á Kjalarnesi. Gert er ráð fyrir 1 – 6 stiga frosti og éljagangi þegar líður á daginn.
Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu hafa um 150 – 200 björgunarsveitarmenn verið að störfum á höfuðborgarsvæðinu í dag með um 30 tæki, en verkefni sveitanna í dag spanna nú um 140. Fyrst og fremst hafa menn aðstoðað fólk í föstum bílum, einna helst í efri byggðum. Áhersla var lögð á að aðstoða fólk með börn og að færa bíla sem voru í vegi fyrir ruðningstækjum. Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu jafnframt starfsfólk Landspítala til þess að komast til vinnu.
Álag á neyðarnúmerið 1-1-2 hefur verið með því mesta sem þekkst hefur. Almannavarnir segja áríðandi að fólk átti sig á því að 1-1-2 er neyðarnúmer og ekki gert ráð fyrir að þar séu gefnar upplýsingar um færð og annað.
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallaði út viðbótarmannskap til þess að anna miklu álagi við sjúkraflutninga og önnur björgunarstörf.