Öllum ferðum Strætó hefur verið aflýst í augnablikinu vegna veðurs og færðar. Skoðað verður með akstur næst klukkan 12:30.
Einnig hefur Ferðaþjónusta fatlaðra í Reykjavík hætt akstri. Þó verður unnið í því eins og hægt er að koma þeim heim sem fóru af stað í morgun.