Tvær rannsóknarnefndir sem starfa á vegum Alþingis hafa að óbreyttu ekki fé til að ljúka skýrslum sínum. Málið hefur verið rætt í forsætisnefnd Alþingis og forseti þingsins rætt það við fjármálaráðherra.
Alþingi veitti 103 milljónir kr. á fjárlögum ársins til að ljúka starfi rannsóknarnefnda vegna Íbúðalánasjóðs og falls sparisjóðanna. Það er mun lægri fjárhæð en skrifstofa Alþingis taldi nauðsynlegt.
„Það eru ekki fjárveitingar til að halda áfram. Því verður að stöðva verkið þar til Alþingi samþykkir að auka við fjárveitingar eða ákveður annað,“ segir Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi í fjárlaganefnd, í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinui í dag.