Aftur stolið frá Eðalfiski

Eðalfiskur framleiðir reyktan og grafinn lax.
Eðalfiskur framleiðir reyktan og grafinn lax.

Brotist var inn í frystigám hjá fyrirtækinu Eðalfiski í Borgarnesi í liðinni viku og um 120 kg af reyktum laxi í útflutningsumbúðum stolið. Þetta er í annað skipti sem brotist er inn hjá fyrirtækinu en um sl. jól var einnig stolið reyktum laxi frá fyrirtækinu.

Þetta kemur fram í frétt á vef Skessuhorns. Stuttu fyrir jól var rúmlega 300 kílóum af reyktum laxi í 30 kössum var stolið úr gámi frá Eðalfiski.

Nú stendur yfir vinna við uppsetningu á bættu öryggiskerfi og myndavélum hjá fyrirtækinu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert