Ný 800 íbúða byggð í Skerjafirði

Landið sem um ræðir er litað grænt á skýringarmyndinni. Þarna …
Landið sem um ræðir er litað grænt á skýringarmyndinni. Þarna gefst færi á að skipuleggja allt að 800 íbúða byggð. Verður tekið mið af skipulagshugmyndum í Vatnsmýri.

Samningar hafa tekist á milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um kaup á landi ríkisins í Skerjafirði. Í samningnum felst að Reykjavíkurborg kaupir land ríkisins, alls um 112.000 fermetra svæði. Gera má ráð fyrir að allt að 800 íbúðir geti risið á byggingarlandinu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Katrín Júlíusdóttir fjármálaráðherra og Dagur B. Eggertsson, sem staðgengill borgarstjóra, undirrituðu samninginn á Reykjavíkurflugvelli. Samningurinn var samþykktur í borgarráði með öllum greiddum atkvæðum á fundi þess í morgun, að því er segir í tilkynningu. Samningur ríkisins og Reykjavíkurborgar er svokallaður marksamningur.

Fyrsta greiðsla 440 milljónir

„Þar sem svæðið er óskipulagt er ekki einfalt að finna rétt verð í viðskiptum með það. Reykjavíkurborg skuldbindur sig til að selja allar lóðir á markaði. Ríkinu er tryggt lágmarksverð í upphafi en skiptan hlut á móti Reykjavíkurborg eftir því sem hærra verð fæst fyrir landið. Áhættu borgarinnar er einnig haldið í lágmarki með því að ekkert verður greitt fyrir landið fyrr en lokun flugbrautarinnar er orðin að veruleika. Þetta þýðir að ríkið fær meira fyrir sinn hlut eftir því sem nýting landsins eykst. Og sama á við um hlut Reykjavíkurborgar í sölu byggingarréttar.

Fyrsta greiðsla Reykjavíkurborgar til ríkisins vegna samkomulagsins verður 440 milljónir króna en aðrar greiðslur munu taka mið af því sem fæst fyrir sölu byggingarréttar á svæðinu. Verðmæti byggingarréttar getur orðið á bilinu einn til þrír milljarðar. Nákvæmar tölur munu taka mið af endanlegu skipulagi og verði fyrir sölu byggingarréttar. Ætla má að hlutur ríkisins verði á annan milljarð króna og hlutur Reykjavíkurborgar litlu minni en gert er ráð fyrir tiltölulega þéttri byggð á svæðinu og að hátt verð fáist fyrir landið,“ segir í tilkynningunni.

Byggt upp á svæðum sem losna við lokun litlu flugbrautarinnar

Þá kemur fram að í samningnum segi að sameiginlegt markmið ríkis og Reykjavíkurborgar sé að koma svæðunum sem losna við lokun norður/suður  og austur/vestur flugbrautar Reykjavíkurflugvallar (stundum kölluð litla flugbrautin) í uppbyggingu með hag beggja samningsaðila að leiðarljósi.

Fjöldi íbúða og fyrirkomulag á svæðinu verði útfærður í deiliskipulagi undir forystu umhverfis- og skipulagssviðs. Aðferðafræði við deiliskipulagið hafi ekki verið ákveðin en þó sé ljóst að horft verður til vinningstillögu um heildarskipulag Vatnsmýrarinnar.

Þá segir að vinna við skipulagið hefjist fljótlega þótt ljóst sé að uppbygging fari ekki af stað fyrr en innanríkisráðuneytið hafi formlega tilkynnt um lokun flugbrautarinnar. Unnið sé að samkomulagi við innanríkisráðuneytið og standi vonir til að frá því verði gengið innan tíðar.

„Vert er að rifja upp að gert hefur verið ráð fyrir lokun litlu flugbrautarinnar með sameiginlegri viljayfirlýsingu ráðuneytisins og Reykjavíkurborgar frá árinu 1999. Þá var gert ráð fyrir að samgöngumiðstöð gæti staðið. Þess má jafnframt geta að í úttekt samgönguráðuneytis og Reykjavíkurborgar frá 2007 þar sem bornir voru saman ýmsir kostir í flugvallarmálinu, var í öllum tilvikum gert ráð fyrir að þessi þriðja braut flugvallarins í Vatnsmýri yrði lögð af,“ segir í tilkynningu.

Dagur B. Eggertsson undirritaði samninginn sem staðgengill borgarstjóra ásamt Katrínu …
Dagur B. Eggertsson undirritaði samninginn sem staðgengill borgarstjóra ásamt Katrínu Júlíusdóttur, fjármálaráðherra.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert