Þingfundur hófst kl. 10 í morgun og stendur nú yfir umræða um opinbera háskóla. Enn er óvíst hvenær störfum Alþingis lýkur þrátt fyrir að þeim hafi átt að ljúka í gær samkvæmt dagskrá þingsins.
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, boðaði formenn stjórnmálaflokkanna á fund í morgun til að ræða þinglok.