Svifryk yfir heilsufarsmörkum í dag

Næstu daga er búist við að þurrviðri og auknum vindi …
Næstu daga er búist við að þurrviðri og auknum vindi sem geti þyrlað upp ryki af þurri jörðu og rykmengun. mbl.is/Rax

Styrkur svifryks (PM10) verður líklega yfir heilsuverndarmörkum í Reykjavík í dag,  mánudaginn 18. mars. Í dag er hægur vindur, götur þurrar og engar líkur á úrkomu. Hálftímagildi svifryks við mælistöðina á Grensásvegi var klukkan 10 94,3 míkrógrömm á rúmmetra en sólarhrings heilsuverndarmörkin eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Næstu daga er búist við að þurrviðri og auknum vindi sem geti þyrlað upp ryki af þurri jörðu og rykmengun.

 Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til.  Áhugasamir geta fylgst með styrk svifryks á vefmæli á vefsíðu Reykjavíkurborgar, www.reykjavik.is en hann sýnir styrkinn á mælistöðinni við Grensásveg.

 Uppspretta svifryks í dag er m.a. frá ösku frá svæðinu í kringum Grímsvötn sem barst til höfuðborgarsvæðisins í óveðrinu um daginn. Askan hefur enn ekki náð að skolast burt.   

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert