Snjóflóð féll fyrir ofan Flateyri á fimmta tímanum í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni var flóðið í stærri kantinum og var það um 30 - 40 metra breitt þegar það náði niður á þjóðveginn.
Flóðið féll á snjófljóðavarnargarðinn sem virðist hafa sveigt því frá og beint því austur fyrir bæinn.
Vegagerðin hreinsaði veginn í morgun en ekki verður hægt að ganga í skugga um hvort fleiri flóð hafa fallið fyrr en veður lægir.
Flóðið í nótt kom úr sama gili og mannskæða snjóflóðið sem féll á Flateyri árið 1995.