Skiptar skoðanir á bensínhækkunum

Þróun bensínverðs og hvernig það er samsett.
Þróun bensínverðs og hvernig það er samsett.

Framkvæmdastjóri FÍB segir óeðlilegar hækkanir hafa orðið á bensíni og segir að það hefði átt að lækka vegna lækkunar á heimsmarkaðsverði og styrkara gengi krónu. Markaðsstjóri Atlantsolíu segir að reynt sé að endurspegla heimsmarkaðsverð eins og kostur er á og nefnir dæmi um að verð hafi ekki verið hækkað, þrátt fyrir hækkanir á heimsmarkaði.

FÍB reiknar reglulega út álagningu olíufélaganna á eldsneyti og segir að bensínlítrinn sé um tíu krónum of dýr miðað við lækkun heimsmarkaðsverðs og styrkara gengi krónu.  Á vefsíðu FÍB segir að í byrjun ársins hafi innkaupsverð bensíns verið nánast hið sama og það er nú. Skattar og álögur ríkisins voru þær sömu og sömuleiðis gengi krónunnar. Útsöluverð til neytenda var ekki það sama og nú, heldur var það rúmum átta krónum lægra. Þá kostaði bensínlítrinn kr. 246,80, nú kostar hann 255,30.

Álagningin átta krónum hærri en að meðaltali í fyrra

„Olíufélögin segja að við notum ekki rétt viðmið við þessa útreikninga. En okkar upplýsingar koma frá Financial Times og við höfum notast við þær lengi. Samkvæmt þeim er álagning á bensín um þessar mundir átta krónum hærri en hún var að meðaltali í fyrra miðað við vísitölu,“ segir  Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB.

„Til þess að reikna þetta út notum við sömu aðferðafræði og notuð er í nágrannalöndum. Við erum með skráð heimsmarkaðsverð, viðskiptin eiga sér stað í  bandarískum dollurum,  þannig að við skráum daglega gengi á mörkuðum. Bensín og díselolía eru seld í tonnum og við reiknum lítrafjöldann út frá eðlisþyngd hvors um sig. Síðan bætast við skattar, álagning og flutningskostnaður.“

„Út frá þessu finnum við svokallað álagningarviðmið, sem við uppreiknum með vísitölu neysluverðs. Með þessum útreikningum sjáum við að  meðalálagning og flutningskostnaður ársins 2012 var 34 krónur á hvern bensínlítra og 38 á dísellítrann. Þetta var einni krónu hærra á bensínlítrann en árið á undan og þremur krónum á díselið.“

„Fólk er mjög uggandi vegna eldsneytisverðs. Rekstur einkabílsins er næst stærsti útgjaldaliður heimilanna og í mörgum tilvikum eru almenningssamgöngur eða hjólreiðar ekki raunhæfur valkostur,“ segir Runólfur.

Reynum að endurspegla heimsmarkaðsverðið

„Álagning er alltaf á hreyfingu í báðar áttir. Við reynum eins og við getum að endurspegla heimsmarkaðsverðið, á einum tíma er það á leiðinni upp, á öðrum tíma á leiðinni niður. Svo kemur eitthvað bil þar á milli sem við erum að reyna að endurspegla“ segir Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu. 

„Ef við tökum dæmi um það sem hefur verið að gerast upp úr áramótum, þá kostaði tonnið af bensíni 961 dollara 31. desember síðastliðinn og þá kostaði bensínlítrinn 246,50 kr.,“ segir Hugi.

„Þann 9. janúar kostaði tonnið 1.006 dollara. Gengið á dollarnum á þessum sömu dögum fór úr 128,59 í 130,14 krónur. Bensínlítrinn kostaði áfram það sama, þarna hækkaði bensínverðið ekki þrátt fyrir að innkaupsverð hefði hækkað. Enginn vill verða fyrstur til að hækka verðið, það er reynt að bíða eins lengi og hægt er. En á einhverjum tímapunkti hækkar einhver og hinir fylgja á eftir.“

Fagnar eftirliti FÍB

Hugi segir að undirliggjandi hækkanir sem þessar þurfi að taka með inn í reikninginn. „Ég er ekkert að rengja tölur FÍB, en á meðan flöktið á innkaupsverðinu og genginu er svona mikið, þá munu alltaf verða svona stöðumyndanir þar sem hægt er að halda því fram að við séum að hækka álagninguna.“

Hugi segist fagna því hversu vel FÍB fylgist með eldsneytisverði. „Þau halda okkur á tánum og er það bara vel.“

Þróun verðs á dísilolíu og hvernig það er samsett.
Þróun verðs á dísilolíu og hvernig það er samsett.
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB:
Runólfur Ólafsson framkvæmdastjóri FÍB: SteinarH
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu.
Hugi Hreiðarsson, markaðsstjóri Atlantsolíu. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert