4,7% atvinnuleysi

Atvinnuleysið er mest á Suðurnesjum
Atvinnuleysið er mest á Suðurnesjum mbl.is/Sigurður Bogi

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands mældist atvinnuleysi 4,7% í febrúarmánuði en samkvæmt skýrslu Vinnumálastofnunar fyrir sama mánuð var atvinnuleysið 5,5%.

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í febrúar 2013 að jafnaði 178.400 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 170.000 starfandi og 8.400 án vinnu og í atvinnuleit.  Atvinnuleysi var 2,6 prósentustigum lægra en í febrúar 2012 en þá var atvinnuleysi 7,3%. Atvinnuleysi í febrúar 2013 var 4,4% á meðal karla miðað við 7,9% í febrúar 2012 og meðal kvenna var það 5% miðað við 6,6% í febrúar 2012.

Atvinnulausir teljast þeir sem voru án atvinnu í viðmiðunarviku könnunarinnar, þ.e. höfðu hvorki atvinnu né voru í vinnu (í eina klukkustund eða lengur) sem launþegar eða sjálfstætt starfandi, eru að leita að vinnu og geta hafið störf innan tveggja vikna eða hafa fengið starf sem hefst innan 3 mánaða, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert