Bestu málsvarar ungmenna eru ungmennin sjálf

Frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði
Frá ráðstefnunni Ungt fólk og lýðræði Ljósmynd Gunnar Gunnarsson

Ráðstefnan Ungt fólk og lýðræði skorar á íslensk stjórnvöld, jafnt ríki sem sveitarfélög að leita meira til ungmenna og taka tillit til þeirra skoðana á málefnum samfélagsins, einkum þau sem varða ungmennin sjálf. Bestu málsvarar ungmenna eru ungmennin sjálf. Þetta kemur fram í áskorun ráðstefnunnar sem var haldin nýverið á Egilsstöðum.

„Virk lýðræðisþátttaka ungmenna snýst um meira en árlegan fund með bæjarstjórn fyrir framan myndavélar. Hún snýst um samræður og samskipti alla daga ársins. Stjórnvöld verða að hafa ungmenni í huga og með í ráðum þegar þau fjalla um tillögur sínar og að ungmenni séu í stöðu til að hafa áhrif á þau málefni er þau snerta.

Í þessu sambandi minnir ráðstefnan sérstaklega á 12. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna um rétt barna og ungmenna til að láta skoðanir sínar í ljós og hafa áhrif á öll mál er þau varða og tekið sé réttmætt tillit til þeirra í samræmi við aldur og þroska. Sérstaklega sé höfð í huga 4. grein sáttmálans sem fjallar um ábyrgð ríkis og sveitarfélaga til að tryggja þau réttindi sem Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna kveður á um. Ráðstefnan bendir einnig á 17. grein um aðgang að upplýsingum sem stuðli að alhliða þroska.

Þátttaka í lýðræði og samfélaginu krefst þjálfunar. Enginn einstaklingur stekkur fullmótaður fram á sjónarsviðið. Ráðstefnan hvetur því öll sveitarfélög landsins til að koma á fót ungmennaráðum. Ráðin hafi sömu stöðu og aðrar nefndir sveitarfélaga, til dæmis hvað varðar vald yfir fjármagni. Ráðin séu sýnileg og framboð í þau opin hverju því ungmenni sem áhuga hefur.

Ráðstefnan fagnar því að stjórnvöld hafi brugðist jákvætt við áskorun hennar frá því í fyrra og fullgilt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Að sama skapi er mikilvægi þess að fullgildingin fái þá umræðu sem hún verðskuldar ítrekað og stjórnvöld virði þá skuldbindingu sem felst í Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Ráðstefnan þakkar Ungmennafélagi Íslands fyrir að standa fyrir ráðstefnu á borð við Ungt fólk og lýðræði. Hún gefur ungu fólki færi á að mynda tengsl, ræða sín viðhorf, koma þeim á framfæri og sanna fyrir því að það geti haft áhrif. Við hvetjum til þess að ráðstefna sem þessi verði haldin á hverju ári og megi aðrir taka UMFÍ sér til fyrirmyndar,“ segir enn fremur í ályktuninni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert