Bað Guðnýju afsökunar

Guðný Jóna Kristjánsdóttir
Guðný Jóna Kristjánsdóttir Skjáskot úr Kastljósi.

Sighvatur Karlsson, sóknarprestur á Húsavík, hefur beðið Guðnýju Jónu Kristjánsdóttur formlega afsökunar „á því að hafa ekki mætt henni með þeim stuðningi sem hún þurfti í kjölfar nauðgunar“. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem séra Sighvatur sendi frá sér í dag.

Guðný sagði sögu sína í Kastljósi í vikunni, en henni var nauðgað á Húsavík árið 1999. Dómur féll í málinu árið eftir. Sama ár birtu 113 Húsvíkingar yfirlýsingu opinberlega þar sem þeir lýstu yfir stuðningi við nauðgarann.

Guðný var spurð í viðtalinu í Kastljósi hvort einhver hefði þrýst á hana um að kæra ekki nauðgunina. Hún sagði að séra Sighvatur hefði „ýjað“ að því við sig hvort „það væri ekki betra að hætta bara við þetta“.

Þegar DV fjallaði um þetta mál á sínum tíma gagnrýndi séra Sighvatur birtingu listans og sagðist hafa reynt að koma í veg fyrir opinbera birtingu hans. Hann lét jafnframt hafa eftir sér að hann teldi ekki fullreynt að leita sátta í málinu með aðstoð sálfræðings.

Hvetur þolendur að kæra

Í yfirlýsingu sem séra Sighvatur sendi frá sér í dag segir: „Í tilefni af viðtali við Guðnýju Jónu Kristjánsdóttur í Kastljósi mánudagskvöldið 8. apríl vil ég taka fram eftirfarandi:

 Ég hef haft samband við Guðnýju Jónu og beðið hana afsökunar á því að hafa ekki mætt henni með þeim stuðningi sem hún þurfti í kjölfar nauðgunar. Hugur minn stóð aldrei til þess að fá hana til að draga kæru sína til baka. Mér er nú ljóst mikilvægi þess að tala mjög skýrt í málum sem þessum.

 Í kjölfar þessa alvarlega atburðar fór af stað erfið umræða innan samfélagsins á Húsavík. Ég gerði það sem í mínu valdi stóð til að koma í veg fyrir að undirskriftalisti til stuðnings gerandanum yrði birtur í Skránni. Ég reyndi  einnig að lægja öldurnar með yfirlýsingu sem birt var í Skránni. Af henni má ráða mína afstöðu sem var að réttvísin ætti að leiða þetta mál til lykta.

Í mínum huga er nauðgun mjög alvarlegur glæpur, sem ber að taka á sem slíkum. Það er skýlaus réttur þolandans að kæra slíkan verknað og að réttvísin fái að hafa sinn framgang. Í dag hika ég ekki við að hvetja þolendur til að leggja fram kæru í kynferðisbrotamálum og leita þeirrar aðstoðar fagaðila sem nú er í boði. Við verðum öll að draga lærdóm af þessu máli. Mistök sem þessi mega ekki endurtaka sig.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert