Stjórn Samtaka eldri sjálfstæðismanna, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir stuðningi við Bjarna Benediktsson, formann Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnin „skorar á hann að halda ótrauður áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins. Bjarni sýndi kjark og einlægni í sjónvarpsþætti í gærkvöldi 11. apríl og þannig einstaklingur á að vera í forystu fyrir Sjálfstæðisflokkinn,“ segir í yfirlýsingunni.