Fyrirtaka fór fram fyrir helgi í máli Dróma hf. gegn Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Ingólfi Helgasyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings á Íslandi, Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni Kaupþings, Steingrími Páli Kárasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra áhættustýringar Kaupþings og Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg auk einkahlutafélaganna Hvítsstaða og Langárfoss.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins bera stefndu fyrir sig að lán, sem tekið var hjá SPRON til jarðarkaupa, sé ólögmætt gengistryggt lán og beri að reikna upp á nýtt.
Málið sem tekið var fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur snýst um kúlulán sem eignarhaldsfélag stefndu, Hvítsstaðir ehf., tók til kaupa á jörðinni Langárfoss árið 2005, en endurgreiða átti lánið árið 2010.
Dómkvaddur matsmaður hefur verið fenginn til að verðmeta jörðina en ekki er vitað hversu háar fjárhæðir Drómi krefur stefndu um.
Í nóvember árið 2009 stóðu skuldir Hvítsstaða, eignarhaldsfélags stefndu, í rúmum milljarði króna, en eignir þess, fjórar jarðir, voru á þeim tíma metnar á 400 milljónir króna.
Í ljósi lækkandi jarðaverðs má gera ráð fyrir að verðmat jarðanna verði lægra en það var þegar jarðirnar voru keyptar.