Þurfa að sækja um leyfi til lögreglunnar

Morgunblaðið/Ómar

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu vill að gefnu tilefni vekja athygli á því að íbúðareigendur sem hyggjast leigja íbúðir sínar í skammtímaleigu til ferðamanna þurfa að sækja um rekstrarleyfi samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

Útgáfa rekstrarleyfa er m.a. háð því að starfsleyfi, sem gefin eru út af heilbrigðisnefndum sveitarfélaga, fáist fyrir starfseminni og að lögbundnir umsagnaraðilar, þ.e. sveitarstjórnir, heilbrigðisnefndir, slökkvilið, byggingafulltrúi og vinnueftirlit, leggist ekki gegn útgáfu leyfisins.

Embætti lögreglustjóra veitir rekstrarleyfi í umdæmi sýslumannsins í Reykjavík en sýslumaðurinn í Kópavogi og í Hafnarfirði sjá um leyfisveitingar í sínum umdæmum. Rekstrarleyfi eru veitt til fjögurra ára í senn og kosta 24.000 kr. þegar um er að ræða heimagistingu eða skammtímaleigu á íbúðum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert