Launamunur kynjanna 188 þúsund kr.

Stjórnendur voru með hæstu heildarlaunin árið 2012 eða 904 þúsund …
Stjórnendur voru með hæstu heildarlaunin árið 2012 eða 904 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Heildarlaun karlkyns stjórnenda voru 964 þúsund að meðaltali á mánuði og heildarlaun kvenkyns stjórnenda voru 745 þúsund krónur. Af vef Langanesbyggðar

Karlstjórnendur eru með 872 þúsund krónur að meðaltali á meðan kvenstjórnendur eru að meðaltali 684 þúsund krónur í laun að meðaltali á mánuði. Þetta þýðir að karlinn er með 188 þúsund krónum meira í mánaðarlaun en konan. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri launakönnun Hagstofu Íslands.

Stjórnendur voru með hæstu reglulegu launin á almennum vinnumarkaði árið 2012 en regluleg laun fullvinnandi stjórnenda voru 821 þúsund krónur að meðaltali. Fleiri stjórnendur voru með laun undir meðaltalinu en yfir því en helmingur hópsins var með 717 þúsund krónur á mánuði eða minna en það var miðgildi hópsins.

Hafa ber í huga að starfsstéttin stjórnendur er misleitur hópur hvað varðar laun en í starfsstéttinni eru bæði yfirmenn deilda og æðstu stjórnendur fyrirtækja, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Verkafólk með lægstu launin

Þá voru regluleg laun lægst hjá verkafólki árið 2012, en regluleg laun þeirra voru 296 þúsund krónur að meðaltali hjá fullvinnandi launamönnum. Um 60% verkafólks voru með regluleg laun undir 300 þúsund krónur á mánuði. Í starfsstéttinni eru ekki mörg útgildi til hækkunar á meðaltalinu sem sést á því að miðgildi hópsins var einungis 21 þúsund krónum lægra en meðaltalið. Regluleg laun verkamanna voru 305 þúsund krónur á mánuði að meðaltali en regluleg laun verkakvenna voru 266 þúsund krónur. Munur milli kynja er því 39 þúsund krónur á mánuði.

Heildarlaun stjórnenda hæst en afgreiðslufólks lægst

Stjórnendur voru einnig með hæstu heildarlaunin árið 2012 á almennum vinnumarkaði eða 904 þúsund krónur að meðaltali á mánuði. Heildarlaun karlkyns stjórnenda voru 964 þúsund að meðaltali á mánuði og heildarlaun kvenkyns stjórnenda voru 745 þúsund krónur. Greiddar stundir karlkyns stjórnenda voru 40 stundir á viku að meðaltali og 39,7 stundir hjá kvenkyns stjórnendum. Þá voru um 20% karlkyns stjórnenda með heildarlaun hærri en 1.200 þúsund krónur á mánuði en um 10% kvenkyns stjórnenda.

Hins vegar var afgreiðslufólk með lægstu heildarlaunin árið 2012 eða 367 þúsund krónur að meðaltali. Heildarlaun karla við afgreiðslustörf voru 394 þúsund krónur að meðaltali á mánuði og heildarlaun kvenna við afgreiðslustörf voru 333 þúsund krónur að meðaltali. Greiddar stundir voru að meðaltali 41,6 á viku, 41,9 stundir hjá körlum og 41,3 stundir hjá konum. Helmingur kvenna var með heildarlaun á bilinu 250-350 þúsund krónur á mánuði og 35% karla.

Heildarlaun ber að skoða með tilliti til greiddra stunda þar sem mismunandi vinnustundafjöldi getur legið að baki þeim. Árið 2012 voru greiddar stundir færri hjá konum en körlum í öllum starfsstéttum. Greiddar stundir voru flestar hjá verkafólki eða 46,5 á viku en greiddar stundir verkakarla voru 47,0 á viku að meðaltali og verkakvenna 44,9. Þar á eftir komu iðnaðarmenn með 46,4 greiddar stundir á viku. Greiddar stundir karla í hópi iðnaðarmanna voru 46,5 á viku að meðaltali og kvenna 41,5.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert