Smábátar fá fjórum sinnum meira

Makríll.
Makríll.

Reglugerð um makrílveiðar íslenskra skipa 2013 hefur verið gefin út af atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu. Í henni kemur fram heildarmagn þess makríls sem gert er ráð fyrir að veitt verði ásamt skiptingu milli flokka veiðiskipa.
 
Heildarveiði á makríl er samkvæmt reglugerðinni áætluð 123.182 þúsund tonn. Er þetta aflamagn 15% lægra en ákveðið var á síðasta ári. Lækkunin tekur mið af breytingu í ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Er þetta sama aðferð og beitt hefur verið hér á landi frá árinu 2011.

Úthlutað er aflamagni til skipaflokka þannig að til smábáta leggjast 3.200 tonn, til ísfisksskipa 6.703 tonn, til frystitogara 25.976 tonn og til uppsjávarskipa 87.303 tonn.

Í frétt atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins er vaktin athygli á að ákveðið hefur verið að fjórfalda aflamagn smábáta frá fyrra ári þrátt fyrir nokkra lækkun á heildarmagni. Er þá tekið mið af því magni sem þeim var upphaflega úthlutað 2010 og svo hins að ganga makríls á grunnslóð hefur stöðugt verið að aukast og þekking og tök þeirra á þessum veiðum hefur tekið miklum framförum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert