Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar í dag laugardag og næstu daga þangað til annað verður tilkynnt. Ástæðan er ölduhæð í Landeyjahöfn, en hún er þessa stundina um 3,3 m.
Samkvæmt spá eru töluverðar líkur á að ófært verði til Landeyjahafnar næstu daga.
<span>Brottför frá Vestmannaeyjum í dag er kl. 08:00 og 15:30</span>
Brottför frá Þorlákshöfn 11:45 og 19:15.