Þrjár fasteignasölur hafa tekið í sölu 202 fermetra 6 herbergja íbúð á 8. hæð í nýju lyftuhúsi í Skuggahverfinu og er ásett verð 106,9 milljónir króna. Íbúðin er með tvennum svölum til suðurs og vesturs. Sex herbergja íbúð á 7. hæð kostar 99 milljónir króna.
Íbúðirnar afhendast fullbúnar án gólfefna.
Þá kosta 96 fermetra íbúðir í turninum 47,5 milljónir svo nærrri lætur að fermetraverð í húsinu sé um 500.000 krónur.
Fræðast má um dýrustu íbúðina hér.