Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, mun í dag kl. 15 taka á móti Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, á Bessastöðum.
Í tilkynningu frá embættinu segir að það sé í kjölfar alþingiskosninganna og að forseti muni að loknum fundi ræða við fjölmiðla.
Ekki fengust upplýsingar frá forsetaembættinu um efni þess blaðamannafundar annað en það sem kemur fram í tilkynningu.