Veiðar á úthafsrækju byggja á sóknarstýringu og hefur verið ákveðið að veiðarnar verði stöðvaðar eigi síðar en 1. júlí. Þessi ákvörðun er tekin í ljósi þróunar veiða á yfirstandandi fiskveiðiári og til að tryggja ákveðinn fyrirsjáanleika. Þá má búast við að stjórn veiða á úthafsrækju komi til endurskoðunar fyrir upphaf næsta fiskveiðiárs.
Þetta kemur fram í frétt á vef atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins.
Í júlí 2010 var tekin ákvörðun um að frá og með fiskveiðiárinu 2010/2011 yrði ekki gefinn út heildarafli, og þar með aflamark, vegna veiða á úthafsrækju. Í fréttatilkynningu ráðuneytisins nr. 46/2012 var gerð grein fyrir forsendum þeirrar ákvörðunar.
Þar er rakið að frá fiskveiðiárinu 2000/2001 hafi ekki verið aflað upp í útgefið aflamark. Þá var einnig vísað til skýrslu starfshóps ráðuneytisins um veiðar á úthafsrækju frá 2010, þar sem ljáð var máls á því að tekin yrði upp sóknarstýring í stað aflamarksstýringar við stjórn veiða á stofninum, í því skyni að hvetja til betri nýtingar.
Við upphaf fiskveiðiáranna 2011/2012 og 2012/2013 var ákveðið að framlengja þessari ákvörðun, þ.e. veiðar á úthafsrækju hafa að meginreglu verið öllum frjálsar þó með hliðsjón af ráðgjöf, segir í frétt ráðuneytisins.