Fundi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanns Framsóknarflokksins, og Bjarna Benediktssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins, er lokið.
Eins og greint var frá í frétt mbl.is var mikil leynd yfir fundinum og fengust engar upplýsingar um hvar hann hafi farið fram eða klukkan hvað hann hafi verið þó þær upplýsingar hafi fengist nú að fundinum væri lokið.
Hvorki Sigmundur Davíð né Bjarni hafa viljað tjá sig við fjölmiðla um fundinn, hvorki fyrir hann né eftir og er nú búist við því að Sigmundur Davíð muni meta stöðuna áður en hann óskar eftir formlegum stjórnarmyndunarviðræðum í samræmi við það umboð sem forseti Íslands veitti honum í gær. Hvort vænta megi tíðinda í þeim efnum á morgun fékkst ekki staðfest úr herbúðum Framsóknarflokksins.
Frétt mbl.is: Formenn hittust á leynifundi