Flokkarnir fengu 1,2 milljarða

Ríkissjóður styrkir stjórnmálaflokkana um 290 milljónir á þessu ári.
Ríkissjóður styrkir stjórnmálaflokkana um 290 milljónir á þessu ári. mbl.is/Styrmir Kári

Á síðustu fjórum árum hafa stjórnmálaflokkar á Íslandi fengið samtals 1.223 milljónir króna. Framlögin fara eftir stærð flokkanna og hefur Samfylkingin fengið mest eða 375 milljónir.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur tekið saman upplýsingar um greiðslur ríkisins til stjórnmálasamtaka árin 2010-2013.

Samfylkingin hefur á þessu tímabili fengið mest eða 375 milljónir. Næstmest fékk Sjálfstæðisflokkurinn eða 298 milljónir.

Um framlögin gilda lög nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Þá kemur VG með 273 milljónir. Framsóknarflokkurinn fékk 186 milljónir. Borgarahreyfingin fékk 91 milljón.

Greiðslur til stjórnmálasamtaka eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Þetta framlag fer til stjórnmálasamtaka sem hafa fengið a.m.k. einn mann kjörinn á þing eða náð 2,5% atkvæða. Það framlag skiptist hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í næstliðnum kosningum.

Til viðbótar þessum greiðslum er árlegt framlag til þingflokka, einnig samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Það framlag skiptist þannig að greitt er jafnt einingaverð fyrir hvern þingmann, eitt einingaverð fyrir hvern þingflokk og tólf einingaverð til flokka sem standa utan ríkisstjórnar og skiptist það jafnt á milli þeirra. Skrifstofa Alþingis sér um útgreiðslur á þeim fjárlagalið.

Á árinu 2010 var bætt inn í lögin heimildarákvæði um að stjórnmálasamtök sem bjóði fram í öllum kjördæmum í kosningum til Alþingis geti að loknum kosningum sótt um sérstakan fjárstyrk úr ríkissjóði til að mæta útlögðum kostnaði við kosningabaráttu, að hámarki 3 millj. kr. Á þetta mun reyna nú í fyrsta sinn í kjölfar nýliðinna alþingiskosninga og mun innanríkisráðuneytið setja verklagsreglur og hafa yfirumsjón með þessum styrkjum.

Sjá nánar í frétt frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert