Aleksandra Wójtowicz skipuð lögreglufulltrúi

Aleksandru Wójtowicz.
Aleksandru Wójtowicz.

Ríkislögreglustjóri hefur skipað Aleksöndru Wójtowicz lögreglufulltrúa við alþjóðadeild embættisins til 5 ára, frá og með 10. maí n.k.

Fram kemur í tilkynningu, að Aleksandra sé fædd og uppalin í Póllandi en fluttist til Íslands árið 1996, þá 18 ára gömul. Hún varð íslenskur ríkisborgari árið 2001 og lauk námi við Lögregluskóla ríkisins árið 2009.  

Aleksandra hóf störf í alþjóðadeild árið 2012 en hafði áður starfað hjá lögreglunni á Eskifirði og Seyðisfirði.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert