Minnstar breytingar urðu á verði í matvöruverslunum Víði og Nettó í síðustu verðkönnun ASÍ í apríl ef könnun sem sambandið gerði í september sl. er höfð til hliðsjónar. Fjallað var um könnunina í Morgunblaðinu í dag og kom þá ranglega fram að verðið hefði breyst einna mest í þessum verslunum.
Við vinnslu grafs upp úr könnun ASÍ urðu þau mistök að nöfn á verslunum og þróun vísitalna innan þeirra riðluðust þannig að nöfn og vísitölur áttu ekki saman.
Beðist er velvirðingar á mistökunum.
Leiðrétt tafla fylgir með þessari frétt.
Verðkannanir ASÍ voru gerðar 12. september 2012, 13. janúar 2013, 13. mars 2013 og 13. apríl 2013.