Umhverfisvaktin fagnar því að Faxaflóahafnir skuli hafa haft frumkvæði að því að skoða mengunarálag frá iðjuverum á Grundartanga, en telur að skýrslu þeirra sé ábótavant í mikilvægum atriðum.
Í fréttatilkynningu segir að Umhverfisvaktin við Hvalfjörð hafi lengi reynt að fá iðjuverin á Grundartanga, íslenskar eftirlitsstofnanir og Faxaflóahafnir til viðræðna um stöðu umhverfismála í Hvalfirði, hvar séu hættumerki vegna mengunar og hvernig sé unnt að vakta umhverfið betur.
„Umhverfisvaktin fagnar því að Faxaflóahafnir skuli hafa haft frumkvæði að því að skoða mengunarálag frá iðjuverum á Grundartanga, en telur að skýrslu þeirra sé ábótavant í mikilvægum atriðum, til dæmis í samanburði á umhverfi erlendu álveranna tveggja og Norðuráls sem er staðsett í landbúnaðarhéraði. Umhverfisvaktin telur að vegna staðsetningar Norðuráls ætti Umhverfisstofnun að gera strangari kröfur til fyrirtækisins en nú er gert um losun flúors.
Umhverfisvaktin gerir einnig alvarlega athugasemd við álit Faxaflóahafna að staða mengunarmála í vel ásættanleg og telur að ekki hafi verið sýnt fram á að svo sé,“ segir í ályktuninni.