Verri staða en spár ráðgerðu

Fljótsdalsstöð.
Fljótsdalsstöð. mbl.is/Steinunn

Óvenjulegt veðurfar í vetur hefur leitt til þess að staða í miðlunarlónum Landsvirkjunar á Norður- og Austurlandi er verri en spár gerðu ráð fyrir í upphafi vetrar. Þetta kemur fram á vef Landsvirkjunar.
Vatnshæð Blöndulóns er nú 467,94 metrar yfir sjávarmáli, en það gerðist síðast árið 1999 og fór þá lónið lægst í 466,19 m.y.s.
Vatnshæð Hálslóns er nú í 576,23 m.y.s en hefur áður lægst farið í 580,69 m.y.s. en það var 13. maí árið 2009.
Vatnshæð í Þórisvatni er nú í 565,85 m.y.s. en leita þarf allt til ársins 1999 til að finna lægri stöðu en þá fór vatnshæðin niður í 562,54 m.y.s.
„Af þessum sökum hefur Landsvirkjun dregið úr raforkuvinnslu í Blöndustöð og Fljótsdalsstöð eins og kostur er og þess í stað aukið vinnslu í aflstöðvum á vatnasviði Tungnaár og Þjórsár. Flutningskerfi Landsnets takmarkar hinsvegar verulega svigrúm til orkuflutnings milli landshluta. Slík takmörkun kemur illa niður á rekstri raforkukerfisins við núverandi aðstæður,“ segir í tilkynningu.

Alcoa Fjarðaál beðið um að draga úr orkunotkun

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert