Unnið verður að miklum endurbótum á Hverfisgötu, Frakkastíg og Klapparstíg í sumar. Hjólastígar verða lagðir, gangstéttar endurnýjaðar og hitalögnum komið fyrir. Reykjavíkurborg segir að Hverfisgata og Frakkastígur muni taka stakkaskiptum.
Reykjavíkurborg hefur boðað til kynningarfundar um framkvæmdirnar í Tjarnarbíói miðvikudaginn 15. maí kl. 17.15.
Í tilkynningunni segir, að göturnar verði opnar fyrir umferð gangandi og hjólandi allan framkvæmdatímann. Fyrst verði unnið í akbrautinni og á meðan sé fært um gangstéttarnar og þegar akbrautin hafi verið malbikuð verði hún opin gangandi og hjólandi. Meðan unnið sé að endurnýjun gangstétta verði göngubrúm komið fyrir eftir þörfum til að halda opnu aðgengi að húsum.
„Umferð bíla verður beint um hjáleiðir og til að raska þeirri umferð sem minnst er framkvæmdunum á Hverfisgötu skipt í tvo áfanga. Vinna hefst í júlí á Frakkastíg og á Hverfisgötu frá Vitastíg niður að Vatnsstíg, en frá Vatnsstíg að Klapparstíg ekki fyrr en 26. ágúst. Strætó verður á framkvæmdatíma beint um Sæbraut og verða biðskýli sett upp þar til bráðabirgða.“
Þá segir að framkvæmdirnar séu löngu orðnar tímabærar og Hverfisgata og Frakkastígur taki stakkaskiptum í sumar: