Aukin vöktun verður með neysluvatni höfuðborgarbúa næstu vikur í kjölfar olíumengunarslyssins sem varð í Bláfjöllum í fyrradag. Búið er að fjarlægja mengaðan jarðveg eftir megni undanfarna daga auk þess sem málið er í rannsókn, að því er Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir í tilkynningu.
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur segir ennfremur, að það sé bæði ábyrgðarlaust og algjörlega úr lausu lofti gripið að halda því fram að engin hætta hafi verið á ferðum þegar mengunarslys varð á vatnsverndarsvæði höfuðborgarbúa í fyrradag.
Heilbrigðiseftirlitið kemur þessu á framfæri í tilkynningu í ljósi fréttaflutnings í fjölmiðlun um málið en það segir að farið hafi verið með rangt mál í veigamiklum atriðum.
„Bláfjöll, þar með talið skíðasvæðið og Þríhnúkagígar, eru innan vatnsverndarsvæðis höfuðborgarinnar. Svæðið, sem mengunarslys síðastliðinn miðvikudag átti sér stað á, er einnig innan vatnsverndarsvæðisins, nánar tiltekið á fjarsvæði A. Um er að ræða viðkvæmt svæði með mikilli vernd og takmörkunum á öllum framkvæmdum og fleiru sem valdið getur mengun. Öll meðferð olíu er háð leyfi heilbrigðisnefndar og krafist er fullkominna mengunarvarna. Eins er öll starfsemi starfsleyfisskyld,“ segir í tilkynnigunni
„Bláfjöll eru eitt af aðalákomusvæðum vatnsins sem rennur til vatnstökusvæðanna auk þess sem stórir grunnvatnsstraumar liggja undir svæðinu. Þeir straumar fara meðal annars að aðalvatnstökusvæðum höfuðborgarbúa í Vatnsendakrikum í Heiðmörk og til Kaldárbotna í Hafnarfirði. Það gefur augaleið að öll umhverfisslys á svæðinu eru litin alvarlegum augum og geta haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir neysluvatn höfuðborgarsvæðisins sem er í dag grunnvatn í hæsta gæðaflokki og laust við nokkra meðhöndlun. Ummæli eins og heyrst hafa í tengslum við alvarlegt olíumengunarslys á miðvikudaginn síðastliðinn um að engin hætta sé á ferðum og jafnvel þó að mengunarslysið hefði orðið mun stærra, eru algjörlega úr lausu lofti gripin og ábyrgðarlaus,“ segir ennfremur.