Ók bifreið sinni á strætóskýli

Ökumaður fólksbíls var fluttur á slysadeild Landspítala eftir að hann ók bifreið sinni á biðskýli strætisvagna við Suðurlandsveg um miðjan dag. Maðurinn er töluvert slasaður. Mikil mildi þykir að enginn hafi verið í skýlinu sem er gjörónýtt.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er enn unnið á vettvangi. Olía lak úr bifreiðinni auk þess sem það þarf að draga bílinn af vettvangi. Óljóst er enn með tildrög slyssins en svo virðist sem ökumaður hafi misst stjórn á bifreið sinni með þessum afleiðingum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert