Kjósendur skynsamari en Steingrímur telur

Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins.
Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. mbl.is/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Ég held nefnilega að kjósendur séu miklu skynsamari en Steingrímur J. telur að þeir séu. Ég held að þeir hafi áttað sig á því að ríkisstjórn VG og Samfylkingar hafi gersamlega þrotið örendið og að stjórnin stóð í raun í vegi fyrir uppbyggingu í landinu. Þess vegna hlutu stjórnarflokkarnir þessa hörmulegu útreið, ekki vegna þess að kjósendur vissu ekki hvað þeim væri fyrir bestu, eins og Steingrímur J. ýjar að, heldur þvert á móti vegna þess að kjósendur vita sínu viti.“

Þetta segir Illugi Gunnarsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, á Facebook-síðu sinni um grein sem birtist í breska viðskiptablaðinu Financial Times í dag eftir Steingrím J. Sigfússon, atvinnuvegaráðherra, þar sem hann ræðir um niðurstöður síðustu þingkosninga á Íslandi og einkum það fylgishrun sem vinstriflokkarnir urðu fyrir. Illugi segir greinina athyglisverða en hún endurspegli meðal annars þá skoðun að erfitt sé fyrir stjórnmálamenn á Vesturlöndum að lofa betri tíð enda miklir erfiðleikar framundan í flestum vestrænum ríkjum.

Allir búist við hraðari endurreisn

„Frá stríðslokum hafa stjórnmálamenn getað, að öllu jöfnu, lofað betri tíð. Spurningin er þessi hvernig lýðræðið bregst við þegar hæpið er að gefa slík loforð? Þetta er áhugaverð umræða og hægt að skrifa langt mál um þetta. En skýringanna á gæfuleysi stjórnarflokkanna hér á Íslandi er ekki að leita í þessu. Kjósendur hér á landi sáu hvernig ríkisstjórnin náði að stofna til deilna við allt og alla, skapaði óvissu í öllum grundvallar atvinnugreinum þjóðarinnar, hringlaði ábyrgðarlaust með stjórnarskrána og svo framvegis,“ segir Illugi.

Hann segir að það hafi verið mat allra, þar á meðal Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Alþýðusambands Íslands, Samtaka atvinnulífsins og ríkisstjórnarinnar sjálfrar, að Íslendingar gætu unnið sig mun hraðar út úr efnahagserfiðleikunum en raunin hafi síðan orðið. Þetta hafi almenningur á Íslandi skynjað. „Einhver mestu mistök ríkisstjórnarinnar voru að gera ekki allt til að auka fjárfestingu atvinnulífsins og þar með skjóta stoðum undir hagvöxt í landinu. Mér eru minnisstæð ummæli Steingríms J. þegar hann var spurður á stórum fundi hvort frekari breytinga væri að vænta á skattkerfinu. Svarið var: „You ain´t seen nothing yet.“ Hvort skyldu svona ummæli hvetja menn til að fjárfesta eða letja? Lítið dæmi, en lýsandi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert