Ásmundur Ásmundsson, myndlistarmaður, hefur stefnt Kristni E. Hrafnssyni, myndlistarmanni, fyrir meiðyrði. Stefnan kemur í kjölfar ritdeilna Kristins og Ásmundar, sem spratt af ráðningu nýs rektors Listaháskóla Íslands.
„Ég hef bara ekki haft tækifæri til að kynna mér þessa stefnu eða fá lögfræðing í málið. Það eru allir í fríi yfir þessa helgi og ég er alveg ókunnugur svona málum,“ segir Kristinn. „Næstu skref hjá mér verða að finna mér lögfræðing svo ég geti áttað mig á hver farvegur svona mála er.“
Í grein sem birtist í Morgunblaðinu þann 8. maí síðastliðinn hafði Kristinn eftirfarandi orð um Ásmund: „Ofan á þetta er hann kunnastur fyrir að eyðileggja listaverk annarra listamanna [...].“
Í stefnu krefst Ásmundur þess að ummælin verði dæmd dauð og ómerk. Ásmundur krefst einnig að Kristni verði gerð refsing fyrir brot á 235. grein almennra hegningarlaga, en til vara fyrir brot gegn 234. grein sömu laga.
Þá krefst Ásmundur einnar milljónar króna í miskabætur og 150.000 króna í kostnað til birtingar dómsniðurstöðunnar í dagblaði, auk málskostnaðar.
Væntanlega er Kristinn þar að vísa til verksins Fallegasta bók í heimi, höfundarverki Ásmundar Ásmundssonar, Hannesar Lárussonar og Tinnu Grétarsdóttur, sem var sýnt á sýningunni Koddu í Nýlistarsafninu vorið 2011. Í því verki hafði einu eintaki bókarinnar Flora Islandica eftir Eggert Pétursson verið umbreytt á mjög afgerandi hátt með því að maka blaðsíðurnar matvælum.
Listamaðurinn Eggert Pétursson sagði í fréttum Útvarpsins á þeim tíma að níðingsverk hafi verið unnið á bókinni á Koddu.
Hart var deilt um sýninguna og einnig um höfundarrétt og sæmdarrétt listamanna, samkvæmt frétt mbl.is í apríl 2011.
Verkið Fallegasta bók í heimi var einkum gagnrýnt og ákvað stjórn safnsins að taka verkið niður eftir að farið var fram á lögbann vegna þess.