Svandís Svavarsdóttir, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs og fráfarandi umhverfisráðherra, var í dag kjörin þingflokksformaður flokksins.
Varaformaður var kjörinn Árni Þór Sigurðsson alþingismaður og ritari Lilja Rafney Magnúsdóttir alþingismaður.
Kjörið fór fram á fundi þingflokks VG í dag en stjórn þingflokksins er kjörin til eins árs í senn.