Þrjú sóttu um embætti prests í 50% starfshlutfalli í Patreksfjarðarprestakalli, Vestfjarðarprófastsdæmi. Frestur til að sækja um rann út 7. maí síðastliðinn.
Cand. theol. Arnaldur Máni Finnsson
Cand. theol. Elín Salomé Guðmundsdóttir
Cand. theol. María Guðrún Gunnlaugsdóttir
Biskup Íslands skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts í Vestfjarðaprófastsdæmi.
Embættið veitist frá 1. júní.