Stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur til Reykjavíkur í sumar er tæplega tíu sinnum stærra en Dettifoss og Goðafoss, flaggskip íslenska flotans, og mun vera stærsta skip sem hefur komið til Íslands.
Skipið heitir Adventure of the Seas og er rúmlega 137 þúsund brúttótonn og rúmar rúmlega 3.100 farþega og um 1.200 skipverja.
Í fréttaskýringu um komur skemmtiferðaskipa í Morgunblaðinu í dag kemur meðal annars fram, að fulltrúar skipafélaga sem voru á ráðstefnu hér fyrir skömmu vilja kanna betur hvort hægt sé að bjóða upp á tónleika og fleira fyrir farþega skemmtiferðaskipanna í Hörpu.