SAF mótmæla flutningi flugvallar

Reykjavíkurflugvöllur.
Reykjavíkurflugvöllur. mbl.is

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) mótmæla ákvörðun borgaryfirvalda um flutning innanlandsflugvallar úr Vatnsmýrinni.

Í tilkynningu frá samtökunum lýsa þau furðu sinni á ákvörðun meirihluta borgarstjórnar Reykjavíkur að setja í drög að aðalskipulagi borgarinnar ákvörðun um að leggja af norður/suður-brautina árið 2016 en flugrekendur, flugmálastjóri og aðrir þeir sem best þekkja til, líta svo á að þar með sé flugvöllurinn ónothæfur. Á sama tíma stendur til að byggja flugstöð sem mun trúlega opna um svipað leyti og flugvöllurinn hrekst í burtu.

Samtökin vísa til stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar þar sem lögð er áhersla á að flugvöllurinn verði í nálægð stjórnsýslunnar. Samtökin skora á borgaryfirvöld að endurskoða afstöðu sína með tilliti til afleiðinga þess ef starfsemin verður flutt til Keflavíkur.

Í skoðanakönnun sem gerð var af Capacent Gallup meðal félagsmanna Samtaka ferðaþjónustunnar í september síðastliðnum kemur fram að 71% þeirra félagsmanna, sem tóku afstöðu, vilja hafa höfuðstöðvar innanlandsflugsins í Reykjavík frekar en í Keflavík, segir í tilkynningunni.

Samtökin segja ljóst að þörfin á öflugu innanlandsflugi sé mikil, enda þjóðhagslega hagkvæmur ferðamáti. Þess vegna er mikilvægt að sú umgjörð sem innanlandsfluginu er skapaður s.s. staðsetning, ógni ekki þessu hlutverki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert