Forsætisráðherra sækir hátíðarfund leiðtoga Barentsráðsins (Barents Euro-Arctic Council) á mánudag og þriðjudag. Fundurinn er haldinn í Kirkenes í Noregi, en þar er fastaskrifstofa ráðsins og samstarfsyfirlýsing Barentsráðsins var undirrituð þar fyrir 20 árum. Þetta tilkynnti forsætisráðuneytið nú í kvöld.
Markaði Kirkenesyfirlýsingin upphaf sérstaks samstarfs á vettvangi ríkisstjórna á þessu svæði, en einnig svæðissamstarf á Barentssvæðinu milli þeirra þrettán landsvæða sem því tilheyra. Samtök frumbyggja á svæðinu taka þátt í störfum bæði stjórnvaldshlutans og svæðisráðanna, sem ráðgefandi aðili.
Noregur gegnir nú formennsku í Barentsráðinu og er forsætisráðherra Noregs gestgjafi fundarins. Önnur aðildarríki Barentsráðsins eru Rússland, Svíþjóð, Finnland, Danmörk og Ísland, auk þess sem Evrópusambandið á aðild að ráðinu.