Stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur mótmælir harðlega ákvæðum um stórfellda trjáfellingu í Öskjuhlíð sem kemur fram í samkomulagi Innanríkisráðherra og borgarstjórans í Reykjavík frá 19. apríl. Þá er jafnframt ítrekuð áður send umsögn Skógræktarfélagsins um útivistarsvæðið í Öskjuhlíð.
Formaður og framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur hafa átt fund með formanni umhverfis- og skipulagsráð þar sem þessum mótmælum var komið á framfæri.
Fjölmargir íbúar hafa haft samband við Skógræktarfélagið og krefjast aðgerða félagsins gegn fyrirhugaðri eyðingu á skógum Öskjuhlíðar.
Samkvæmt gildandi aðalskipulagi og drögum að nýju aðalskipulagi Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir að flugvöllurinn verði aflagður árið 2024. Það tekur grenitré um hálfa öld að vaxa í hæð sem skýlir í útivist og varpar fegurð á umhverfið. Fram að þeim tíma sem flugvöllurinn á eftir að standa verður búið að fella einhver þúsundir fallegra grenitrjáa í Öskjuhlíð á altari ellefu ára flugvallarstarfsemi.
„Það veldur vissulega mikilli furðu að það mannvirki sem á að fjarlæga og nota tímabundið verði leyft að valda stórskaða á einu elsta samfellda skógræktarsvæði innan byggðar í Reykjavík. Öskjuhlíðin er nærtækasta skógarsvæði fjölmargra Reykvíkinga sem nota hana daglega til andlegrar heilsubótar. Látið hana í friði!“ segir í bréfi sem sent hefur verið innanríkisráðherra og borgarráði.